Fotbolti.net
28.12.22 - 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ramsey ekki enn mættur til Nice eftir HM

Svekktur með HM.

Svekktur með HM.

Canon

Mynd: EPA

Aaron Ramsey er ekki mættur til æfinga hjá félagsliði sínu Nice eftir að HM í Katar lauk. Það er Lucien Favre, stjóri Nice, sem staðfestir tíðindin.

Favre segir að það hafi tekið á hjá Ramsey að sætta sig við að Wales hafi ekki náð í útsláttarkeppnina í Katar. Hann hefur ekkert spilað síðan Wales datt úr leik í riðlakeppninni fyrir rétt tæpum mánuði síðan.
„Hann er að taka sér smá tíma til að ná endurheimt - svoleiðis er það," sagði Favre um velska miðjumanninn.

„Hann var mjög vonsvikinn með HM." Ramsey var í byrjunarliðinu í öllum leikjum Wales og hefur verið í þokkalega stóru hlutverki hjá Nice eftir að hann kom til félagsins í ágúst. Samningi hans við Juventus var rift í sumar og fór hann á frjálsri sölu til Frakklands.

Hann hefur byrjað tólf af fimmtán deildarleikjum liðsins en ólíklegt er að hann nái næsta leik liðsins sem er gegn RC Lens á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.