Fotbolti.net
28.12.22 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Stór stund fyrir Phillips í kvöld

Phillips í búningi Leeds

Phillips í búningi Leeds

Canon

Mynd: Getty Images

Leeds fær Manchester City í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Það er í fyrsta sinn sem Kalvin Phillips fer á sinn gamla heimavöll eftir að hann gekk til liðs við City.

Jesse Marsch stjóri Leeds segir að Phillips muni ná fram sínu besta í leiknum, komi hann við sögu.

„Það voru svona 30 ættingjar á leikjunum hérna og þú getur örugglega margfaldað það með tveimur fyrir þennan leik. Manni leið alltaf eins og honum liði eins og þetta væri heimilið hans," sagði Marsch.

„Þegar hann ákvað að fara var það einn af erfiðleikunum og að koma aftur og upplifa þessar tilfinningar, ég held að það muni ná því besta út úr honum, þannig persóna er hann. Auðvitað er Kalvin góður leikmaður en fyrir mér er auðvelt að líka vel við hann, góð manneskja að hafa í kringum liðið."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.