Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 29. janúar 2020 18:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Boateng sló Goretzka í andlitið á æfingu
Leon Goretzka.
Leon Goretzka.
Mynd: Getty Images
Bild í Þýskalandi segir að Leon Goretzka og Jerome Boateng hafi lent saman á æfingasvæði Bayern München.

Boateng sló Goretzka í andlitið þar sem hann brást reiður við eftir tæklingu. Myndir frá æfingasvæðinu virðast staðfesta þetta.

Hinn 24 ára gamli Goretzka og hinn 31 árs gamli Boateng hafa reynt að gera lítið úr þesum fréttum með myndum sem Goretzka birti á Twitter. Á myndum halda Goretzka og Boateng brosandi utan um hvorn annan.

„Fótbolti eru tilfinningar, allir ættu að slaka á. Við erum fjölskylda," skrifaði Goretzka við myndirnar sem má sjá hér að neðan.

Bayern er þessa stundina í öðru sæti þýsku úrvalsdeildarinnar, stigi á eftir toppliði Leipzig.



Athugasemdir
banner
banner