Enska blaðið Mirror segir að portúgalski miðjumaðurinn Bruno Fernandes fljúgi til Manchester í dag. Allt sé klárt fyrir læknisskoðun á AON æfingasvæðinu áður en hann muni skrifa undir fjögurra og hálfs árs samning.
United mun borga 46,6 milljónir punda fyrir leikmanninn sem er á leið frá Sporting Lissabon. Sú upphæð gæti svo hækkað með vissum ákvæðum.
United mun borga 46,6 milljónir punda fyrir leikmanninn sem er á leið frá Sporting Lissabon. Sú upphæð gæti svo hækkað með vissum ákvæðum.
Ef allt heldur sem horfir þá verður hann kominn með leikheimild á laugardag þegar United mætir Úlfunum.
Leikmaðurinn var svo orðaður við Barcelona í gær en Spánarmeistararnir skárust of seint í leikinn.
United hafði áhuga á Fernandes síðasta sumar en gerði þó ekki tilboð í þennan sóknarsinnaða miðjumann á þeim tíma. Enska félaginu vantar miðjumann í sínar raðir.
Fernandes hefur skorað 15 mörk í 28 leikjum á tímabilinu.
Uppfært: Blaðamaðurinn áreiðanlegi Fabrizio Romano segir það staðfest að Bruno Fernandes verði leikmaður Manchester United. Hann muni gangast undir læknisskoðun í dag.
Athugasemdir