Aron Bjarnason, kantmaður Ujpest í Ungverjalandi, er á leið í Val en 433.is greinir frá þessu í dag.
Ujpest keypti Aron frá Breiðabliki síðastliðið sumar en hann lék frábærlega með Blikum fyrri hluta tímabils.
Aron spilaði lítið með Ujpest síðustu vikurnar áður en keppni var hætt þar í landi vegna kórónaveirunnar.

Samtals kom Aron við sögu í sextán leikjum í ungversku úrvalsdeildinni í vetur en hann var í byrjunarliðinu í fimm þeirra.
Hinn 24 ára gamli Aron hefur áður leikið með Fram, ÍBV, Þrótti R. og Breiðabliki á Íslandi en hann hefur skorað 24 mörk í 113 leikjum í efstu deild.
Athugasemdir