Brasilíski miðjumaðurinn Arthur segist ekki hafa áhuga á að fara frá Barcelona.
Barcelona þarf að selja leikmenn í sumar til að laga fjárhaginn og Arthur hefur verið orðaður við Juventus og Inter undanfarið.
Barcelona þarf að selja leikmenn í sumar til að laga fjárhaginn og Arthur hefur verið orðaður við Juventus og Inter undanfarið.
„Það eru alltaf sögusagnir en í heinskilni er það eina sem ég hef áhuga á að vera áfram hjá Barcelona," sagði Arthur.
„Ég er alveg viss og ég er mjög rólegur yfir þessu. Mér líður eins og heima hér og ég vil þakka félaginu og þjálfaraliðinu fyrir traustið sem ég hef fengið. Þess vegna vil ég gera allt sem ég get til að vera áfram hér".
Athugasemdir