Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 29. apríl 2020 23:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Pochettino: Ég vil vinna titil með Tottenham áður en ég dey
Mynd: Getty Images
„Áður en ég dey vil ég stýra Tottenham og vinna með liðinu titil," þetta sagði Mauricio Pochettino í viðtali við BT Sport í gærkvöldi.

Pochettino var stjóri Tottenham um árabil og var liðið oft á tíðum nálægt því að krækja í titil en aldrei tókst að klára verkefnið og lyfta titli. Pochettino var rekinn frá Tottenham í nóvember á síðasta ári og tók Jose Mourinho við sem stjóri Tottenham.

„Frá þeim degi sem ég yfirgaf félagið hefur draumurinn minn að snúa til baka einn daginn til að klára það verk sem okkur tókst ekki að klára."

„Ég vil snúa til baka einn daginn, þetta félag er sérstakt."



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner