Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 29. apríl 2020 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Samkomulag náðist hjá Derby - Rooney og Davies þakkað
Wayne Rooney.
Wayne Rooney.
Mynd: Getty Images
Derby County, sem leikur í Championship-deildinni, hefur náð samkomulagi við leikmenn sína um að fresta hluta af launagreiðslum sínum á meðan kórónuveirufaraldurinn stendur yfir.

Það sama á við um þjálfarateymi aðalliðsins, stjórnarmenn og annað starfsfólk félagsins.

Derby hrósaði sérstaklega fyrirliðanum Wayne Rooney og varnarmanninum Curtis Davies fyrir þeirra framlag í viðræðum við félagið.

Derby hefur einnig staðfest að leikmenn, þjálfarar og starfsfólk muni einnig greiða pening í góðgerðarmál á vegum félagsins og að starfsfólk félagsins muni bjóða sig fram sem sjálfboðalið í matarmiðstöð á leikvangi Derby, Pride Park.

Derby var í 12. sæti Championship-deildarinnar áður en hún var stöðvuð í síðasta mánuði.
Athugasemdir
banner
banner