Sportsmail hafði samband við félögin í ensku úrvalsdeildinni, kvennamegin. Staðan var tekin á þeim og þeirra stöðu vegna heimsfaraldursins.
Reading varð á mánudaginn fyrsta úrvalsdeildarliðið til að nýta sér ríkisaðstoð og var staðan tekin á félögum hvort þau myndu feta í fótspor Reading.
Reading varð á mánudaginn fyrsta úrvalsdeildarliðið til að nýta sér ríkisaðstoð og var staðan tekin á félögum hvort þau myndu feta í fótspor Reading.
Chelsea, Manchester United, Manchester City, Tottenham og Liverpool segja það ekki í plönum sínum að fá ríkisaðsoð en einhver stuðningur er fenginn frá enska knattspyrnusambandinu.
Arsenal ætlar sér ekki að nýta sér ríkisaðstoð á þessum tímapunkti en staðan er tekin daglega og gæti félagið nýtt sér aðstoð í framtíðinni. Nokkur félög í næstefstu deild hafa þá nýtt sér ríkisaðstoð á þessum tímapunkti.
Athugasemdir