Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 29. júní 2018 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Matic gaf nýjum liðsfélaga treyju sína
Mynd: Getty Images
Nemanja Matic er skemmtilegur karakter.

Matic spilaði á miðjunni hjá Serbíu er liðið tapaði 2-0 fyrir Brasilíu á HM í Rússlandi á miðvikudag. Tapið þýðir það að Serbía fer heim og verður ekki með í 16-liða úrslitunum.

Matic var þó nokkur hress eftir leikinn og hitti þar á nýjan liðsfélaga sinn hjá Manchester United, Fred. Matic og Fred munu spila saman á miðjunni hjá United á næsta tímabili eftir að Fred var keyptur frá Shakhtar Donetsk á dögunum fyrir 47 milljónir punda.

Matic gaf Fred treyju sína en sá brasilíski greindi frá þessu á Instagram eftir leikinn. „Takk bróðir minn, Nemanja Matic," skrifaði Fred við myndina.

Fred hefur ekkert spilað á HM hingað til en hann varð fyrir meiðslum fyrir mótið og er sagður tæpur.

Brasilía mætir Mexíkó í 16-liða úrslitunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner