Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 29. júní 2018 14:46
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Thiago skammar fjölmiðla: Er framúrskarandi markvörður
Mynd: Getty Images
David de Gea, markvörður Manchester United, hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir frammistöðu sína með Spáni á HM.

Spænskir fjölmiðlar hafa látið De Gea heyra það fyrir það hvernig hann hefur spilað á HM hingað til. Kallað er eftir því að De Gea verði settur á bekkinn.

Thiago Alcantara, miðjumaður Spánar, kemur De Gea til varnar.

„Þetta er erfiðasta staðan á vellinum. Ef þú hefur samt séð leiki David hjá Manchester United og aðra leiki hans hjá Spáni þá getur þú séð að hann er framúrskarandi markvörður," sagði De Gea.

„Fjölmiðlar þurfa að líta í eigin barm og sjá hversu frábær markvörður hann er. Skoðið hversu oft hann hefur verið nefndur sem besti markvörður ensku úrvalsdeildarinnar."

„Hann vinnur eins og villidýr og traustið sem við berum til hans er ristastórt."
Athugasemdir
banner
banner
banner