Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mið 29. júlí 2020 12:39
Magnús Már Einarsson
Andri Lucas með slitið krossband
Mynd: Getty Images
Andri Lucas Guðjohnsen verður frá keppni í hálft ár að minnsta kosti eftir að hafa slitið krossband í hné.

Hinn 18 ára gamli Andri Lucas meiddist á æfingu með unglingaliði Real Madrid.

Andri Lucas hefur vakið athygli fyrir góða frammistöðu með unglingaliði Real Madrid en hann var í október í fyrra á lista yfir efnilegustu leikmenn í heimi að mati The Guardian.

Hann kom til Real Madrid árið 2018 eftir að hafa áður spilað með unglingaliði Espanyol.

Andri Lucas hefur skorað fjórtán mörk í 33 leikjum með yngri landsliðum Íslands en hann hefur spilað með U16, U17, U18 og U19 ára landsliðinu.
Athugasemdir
banner
banner