Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 29. júlí 2020 17:30
Elvar Geir Magnússon
Leikurinn um Samfélagsskjöldinn 29. ágúst
Mynd: Getty Images
Ljóst er hvenær næsta tímabil fer af stað hjá Englandsmeisturum Liverpool en ákveðið er hvenær leikurinn um Samfélagsskjöldinn fer fram.

Leikið verður gegn bikarmeisturunum á Wembley þann 29. ágúst, á laugardegi. Mótherjinn verður Arsenal eða Chelsea.

Arsenal og Chelsea mætast í úrslitaleik FA-bikarsins núna á laugardaginn.

Mögulegt er að einhverjir áhorfendur verði leyfðir á leiknum um Samfélagsskjöldinn en enska knattspyrnusambandið ætlar að gera tilraunir áður en áhorfendur verða leyfðir í október.

Enska úrvalsdeildin mun svo fara af stað helgina 12. september.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner