Hollenski miðvörðurinn Virgil Van Dijk er mættur aftur í lið Liverpool eftir níu mánaða fjarveru vegna meiðsla en hann er á bekknum gegn Herthu Berlín í kvöld.
Van Dijk sleit liðbönd í hné í leik gegn Everton í október á síðasta tímabili.
Hann hefur verið í strangri endurhæfingu síðustu mánuði og hefur æft með aðalliðinu á undirbúningstímabilinu.
Nú er hann klár í að fá nokkrar mínútur. Van Dijk er á bekknum í æfingaleik gegn Herthu Berlín í kvöld.
Leikurinn hefst klukkan 18:20.
Athugasemdir