Uppselt er á leik Íslands og Þýskalands í undankeppni HM kvenna. Leikurinn fer fram klukkan 14:55 á Laugardalsvelli á laugardaginn.
Ísland er á toppi riðilsins fyrir leikinn og getur með sigri tryggt sér sæti á HM í fyrsta skipti.
Ísland er á toppi riðilsins fyrir leikinn og getur með sigri tryggt sér sæti á HM í fyrsta skipti.
Áhorfendamet verður sett á leiknum en fyrra metið er 7521 áhorfandi á vináttuleik gegn Brasilíu í fyrra. Þetta er í fyrsta sinn sem selst upp á leik A landsliðs kvenna
„Þetta er hrikalega gaman og stór áfangi fyrir íslensku þjóðina og íslenskar íþróttir að fylla stærsta íþróttaleikvang landsins á kvennaleik. Þetta er bara geggjað," sagði Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari kvenna í dag.
Miðaverð fyrir fullorðna var 2.000 krónur og 500 krónur fyrir 16 ára og yngri.
Þeir sem keyptu miða á leikinn fengu einnig afsláttarkóða fyrir jafnmarga miða á 50% afslætti á leik Íslands og Tékklands sem fer fram þremur dögum síðar.
Staðan fyrir leikinn við Þjóðverja
Sigur á Þýskalandi = Ísland beint á HM
Jafntefli gegn Þýskalandi = Ísland þarf sigur á Tékkum til að fara á HM
Tap gegn Þjóðverjum = Ísland þarf sigur á Tékkum til að fara í umspil
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir