Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   lau 29. september 2018 16:34
Kristófer Jónsson
Óli Kristjáns: Geri fastlega ráð fyrir því að vera áfram
Óli reiknar með að vera áfram hjá FH
Óli reiknar með að vera áfram hjá FH
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Kristjánsson, þjálfari FH, var að vonum súr eftir að í ljós kom að FH-ingar spili ekki í Evrópukeppni á næsta ári þrátt fyrir 1-0 sigur á Stjörnunni í dag.

„Þetta var góður sigur á góðu liði. Varðandi möguleika okkar að komast áfram var þetta ekki alveg í okkar höndum en við gerðum okkar. En ég er ánægður með frammistöðu okkar í dag" sagði Óli eftir leik.

Það er ekkert leyndarmál að tímabilið hjá FH hefur ekki farið eins og þeir hefðu viljað en þetta er í fyrsta skipti í fjórtán ár sem að liðið kemst ekki í Evrópukeppni.

Lestu um leikinn: Stjarnan 0 -  1 FH

„Tímabilið hefur einkennst af því að það hefur vantað greddu í leikjum sem að við höfum dóminerað. Auðvitað eru það vonbrigði að FH skuli ekki vera að blanda sér í baráttu um titlanna og það er eitthvað sem að ætti að vera bensín á bálið hjá félaginu."

Búast má við einhverjum breytingum á leikmannahópi FH en Óli gerir ráð fyrir því að hann verði áfram stjóri hjá félaginu.

„Við munum halda plani með því sem að við lögðum upp með og það verða einhverjar breytingar, sem að hefur ekkert með það að gera hvar við enduðum í mótinu. Ég geri fastlega ráð fyrir því að ég verði áfram nema að mér verði sparkað." sagði Óli að lokum.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner