Stefán Gíslason og lærisveinar hans í Lommel gerðu 1-1 jafntefli við Lokeren í belgísku fyrstu deildinni í dag.
Kolbeinn var í byrjunarliði Lommel í dag en Lokeren komst yfir á 7. mínútu áður en Kolbeinn fiskaði vítaspyrnu eftir tæpan hálftíma er markvörður Lokeren tók hann niður í teignum.
Jonathan Hendrickx, fyrrum leikmaður FH og Breiðabliks, skoraði úr vítaspyrnunni.
Lokatölur 1-1 og Lommel í næst neðsta sæti með 4 stig eftir átta umferðir.
Athugasemdir