Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 29. september 2019 22:11
Brynjar Ingi Erluson
Rússland: Jón Guðni hélt hreinu í sigri Krasnodar
Jón Guðni sá til þess að Arsenal Tula myndi ekki ná að leka inn marki í dag
Jón Guðni sá til þess að Arsenal Tula myndi ekki ná að leka inn marki í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
FK Krasnodar 2 - 0 Arsenal T
1-0 Ari ('38 , víti)
2-0 Magomed Suleimanov ('63 )
Rautt spjald:Tonny Vilhena, FK Krasnodar ('90)

Rússneska liðið Krasnodar vann 2-0 sigur á Arsenal Tula í rússnesku deildinni í dag.

Jón Guðni Fjóluson hefur verið í byrjunarliði Krasnodar í síðustu þremur leikjum liðsins en liðið hélt hreinu í dag.

Ari kom Krasnodar yfir úr víti á 38. mínútu áður en Magomed Suleimanov tvöfaldaði forystuna á 63. mínútu.

Tonny Vilhena, leikmaður Krasnodar, fékk að líta rauða spjaldið undir lok leiks en það kom ekki að sök. Lokatölur 2-0 og Krasnodar með 23 stig í 4. sæti.
Athugasemdir
banner
banner