Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 29. september 2019 17:39
Brynjar Ingi Erluson
Svíþjóð: Arnór Ingvi og félagar á toppinn
Arnór Ingvi og hans menn í Malmö eru á toppnum
Arnór Ingvi og hans menn í Malmö eru á toppnum
Mynd: Getty Images
Arnór Ingvi Traustason og hans menn í Malmö unnu Eskilstuna 1-0 í sænsku úrvalsdeildinni í dag en liðið fór á toppinn með sigrinum.

Toppbaráttan harðnar í Svíþjóð en Malmö fór upp að hlið Djurgården með sigrinum. Bæði lið eru nú með 56 stig en Djurgården á þó leik til góða en sá leikur er spilaður á morgun.

Arnór Ingvi var í byrjunarliði Malmö en fór af velli á 72. mínútu leiksins.

Guðmundur Þórarinsson var þá í byrjunarliði Norrköping sem vann Falkenberg 2-0. Guðmundur fór af velli á 89. mínútu og þá sat Ísak Bergmann Jóhannesson allan tímann á bekknum.

Norrköping er í 5. sæti með 49 stig þegar fjórar umferðir eru eftir af mótinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner