Fotbolti.net
29.09.22 - 22:45
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Barcelona skuldar Manchester City 50 milljónir

Barcelona skuldar Manchester City 50 milljónir
Canon

Mynd: EPA

Ferran Torres gekk til liðs við Barcelona frá Manchester City í janúar. Barcelona hefur verið í miklum fjárhagsvandræðum og skuldar City rúmar 50 milljónir evra.

Félögin komust að samkomulagi um að Barcelona myndi borga fyrir leikmanninn í skömmtum en þyrfti að vera búið að borga fyrir hann í lok ársins.

Honum hefur gengið erfiðlega að festa sig í sessi í liðinu á þessari leiktíð en hann hefur leikið fimm leiki í deildinni og tvo leiki í Meistaradeildinni og aðeins tvisvar í byrjunarliðinu.

Hann gekk til liðs við City frá Valencia árið 2020 og spilaði 43 leiki og skoraði 16 mörk.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.