Fotbolti.net
29.10.22 - 16:27
Ívan Guðjón Baldursson

Myndband: Conte fór eftir sigurmarkið

Myndband: Conte fór eftir sigurmarkið
Canon

Mynd: EPA

Rodrigo Bentancur fullkomnaði laglega endurkomu Tottenham Hotspur á útivelli gegn Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Tottenham lenti óvænt tveimur mörkum undir en náði að skora tvö mörk í seinni hálfleik til að jafna leikinn í venjulegum leiktíma.

Það var í uppbótartíma sem Bentancur kom boltanum í netið og brást Antonio Conte, knattspyrnustjóri Tottenham, við með því að ganga til búningsklefa.

Conte hefur ekki verið ánægður með spilamennsku sinna manna í leiknum og las þeim væntanlega pistilinn þegar þeir mættu til búningsklefa 1-0 undir eftir bragðdaufan fyrri hálfleik.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.