Verðmiðinn á Rashford - Mikið tap hjá Ratcliffe - Newcastle vill Gittens
Arnór Borg um VÆB fagn Vestra: Daði var að cooka inn í klefa, Róa eitthvað
Dóri Árna: Ef maður misstígur sig einu sinni þá ertu búinn
Davíð Smári eftir magnaðan sigur: Þetta er fótboltaleikur, það eru tilfinningar
Haddi: Gerum glórulaus mistök
Rúnar Kristins: Baráttuandinn og viljinn til staðar
Sjáðu síðasta víti Stjörnunnar og stemninguna hjá Kára í Akraneshöllinni
Hektor Bergmann: Þetta er besta tilfinning í heimi
Jökull eftir sigur í vító: „Eigum sittera fyrir framan markið“
Alexander Aron: Hægt að fara með þennan leik upp í KSÍ og kenna hvernig á að spila fótbolta
Maggi: Fer ekkert ofan af því að það væri fínt að fá VAR til Íslands
Elmar Kári: Draumur að fá þann heiður að taka þátt í þessu verkefni
Pressa á Jóni Þór? - „Það er alveg klárt mál"
Venni sló á létta strengi: Evrópudraumurinn er farinn
Túfa: Að mínu mati eitt af þremur bestu liðunum í Lengjudeildinni
Oliver: Þrennan hefði mátt detta
„Það eru bara hærri hlaupatölur þegar við spilum við KR en önnur lið"
Óskar Hrafn: Í dag duttum við af hjólinu
„Veit ekki hvort að menn hafi haldið að þetta kæmi að sjálfu sér"
Brynjar Kristmunds: Þurftum að bera ákveðna virðingu fyrir því
Bjarni Jó: Heppnaðist illa og ég tek það á mig
   lau 29. október 2022 15:31
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Meistaravöllum
Þorsteinn Már hættur: Búinn að kaupa mér hús í Stykkishólmi
Þorsteinn Már Ragnarsson.
Þorsteinn Már Ragnarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þorsteinn Már Ragnarsson lék í dag sinn síðasta fótboltaleik þegar KR tapaði 0-2 gegn fyrrum félagi hans, Stjörnunni.

Þorsteinn Már, sem er 32 ára, á virkilega flottan feril að baki þar sem hann hefur spilað með KR, Stjörnunni og Víkingi Ólafsvík.

Lestu um leikinn: KR 0 -  2 Stjarnan

„Ég er sáttur með þetta. Þetta er ákvörðun sem ég tók og ég er sáttur við hana. Það var gaman að spila þennan leik með KR og á móti Stjörnunni. Það var skemmtilegt," sagði Þorsteinn Már sem var þó auðvitað svekktur með tapið.

„Ég tók þessa ákvörðun snemma í sumar og ákvað að njóta þess að spila þetta tímabil."

Hann fékk erfitt verkefni í dag að takast á við Ísak Andra Sigurgeirsson, sem lagði upp tvö mörk. „Ísak er rosalega flottur. Ég er búinn að æfa með honum og spila með honum, en núna er ég að spila á móti honum. Framtíðin er hans."

Hvað tekur við núna?

„Ég er búinn að kaupa mér hús í Stykkishólmi og við fjölskyldan ætlum að flytja þangað," sagði Þorsteinn en hann er uppalinn þar á svæðinu. Hann segir að hann muni eflaust sakna fótboltans en hann sé mjög sáttur við þessa ákvörðun núna.
Athugasemdir
banner