Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 29. nóvember 2017 15:00
Hafliði Breiðfjörð
Víti í Vestmannaeyjum - Sjáðu kynningarstikluna
Mynd: Elma Karen
Það er farið að styttast í að kvikmyndin Víti í Vestmannaeyjum verði frumsýnd og nú er hægt að sjá fyrstu stikluna úr myndinni hér neðst í þessari frétt.

Kvikmyndin Víti í Vestmannaeyjum var tekin upp í sumar og byggir á samnefndri bók Gunnars Helgasonar.

Kvikmyndin verður frumsýnd í mars 2018. Framleiðandi myndarinar er Sagafilm.

Sagan er þroska saga Jóns sem fer á sitt fyrsta knattspyrnumót í Vestmannaeyjum. Þar þarf Jón að takast á við sjálfan sig og aðra, bæði innan vallar sem utan.

Jóhann Ævar Grímsson, Otto Geir Borg og Gunnar Helgason skrifa handrit kvikmyndarinna, sem er leikstýrt af Braga Þór Hinrikssyni.

Sambíóin sýna Víti í Vestmannaeyjum á Íslandi og Level K dreifir kvikmyndinni á heimsvísu.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner