Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 29. nóvember 2019 10:52
Elvar Geir Magnússon
Íslandi hafnað á Algarve eftir 13 ára þátttöku
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
A-landslið kvenna verður ekki á meðal þátttökuþjóða á Algarve æfingamótinu 2020, en Ísland hefur leikið á mótinu samfleytt frá 2007.

Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ.

KSÍ sóttist að venju eftir þátttöku liðsins á þessu árlega móti í Portúgal, en mótshaldarar hafa ákveðið að fækka þátttökuliðum niður í 8 lið og er Ísland ekki þar á meðal.

Sagt er á heimasíðu KSÍ að vinna sé í fullum gangi að finna annað verkefni fyrir íslenska kvennalandsliðið í mars og verður það tilkynnt síðar.
Athugasemdir
banner
banner
banner