Frank Lampard, stjóri Chelsea, segist ekki vita hversu lengi Tammy Abraham verði frá.
Þessi 22 ára sóknarmaður, sem hefur skorað ellefu mörk fyrir Chelsea á tímabilinu, meiddist í Evrópuleik gegn Valencia í miðri viku.
Hann er meiddur í mjöðm og spilar ekki með Chelsea gegn West Ham á morgun.

„Þetta kemur í ljós í lok helgarinnar. Hann er eitthvað þjáður og verður ekki með á morgun. Við munum vita það á mánudaginn hversu lengi hann verður frá," segir Lampard.
Athugasemdir