Fotbolti.net
29.11.20 - 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Martröð Pepe - „Eitt mark í Noregi breytir engu"

Pepe fékk rautt gegn Leeds um síðustu helgi.

Pepe fékk rautt gegn Leeds um síðustu helgi.

Canon

Mynd: Getty Images

Nicolas Pepe hefur ekki heillað marga stuðningsmenn Arsenal frá því hann kom til félagsins frá Lille fyrir metupphæð, 72 milljónir punda, á síðasta ári.
Paul Merson, fyrrum leikmaður Arsenal, er ekki hrifinn af því sem Pepe hefur gert og telur að verðmiðinn sé að hafa mikil áhrif á hann.

Pepe skoraði gegn Molde í Evrópudeildinni í síðustu viku en Merson telur það ekki breyta neinu.

„Nicolas Pepe lítur ekki út fyrir að vera nægilega góður," sagði Merson við Daily Star. „Þetta hefur verið martröð fyrir hann frá því hann kom til Arsenal og eitt mark í Evrópudeildinni í Noregi breytir því ekki."

„Pirringurinn tók yfir hjá honum gegn Leeds og hann gerðist sekur um heimskupör með því að skalla mótherja," sagði Merson en Pepe fékk rautt spjald fyrir það.

„Hann kom fyrir 70 milljónir punda. Ef þeir hefðu keypt hann fyrir 20 milljónir, þá væri enginn að væla. Stærri verðmiði þýðir meiri pressa, og hann hefur ekki náð að takast á við það. Ég horfi á hann spila og ég veit ekki hvað hann kemur með inn í leik liðsins. En það er ekki honum að kenna að Arsenal er í vandræðum."

Merson hélt áfram og sagði: „Ég held að Mikel Arteta viti ekki hvað besta liðið sitt er og hann hefur verið þarna í langan tíma. Hann breytir of miklu og það er áhyggjuefni."

Arsenal á leik gegn Wolves í kvöld, en hér að neðan má sjá stigatöfluna í deildinni.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal5+412
3Brighton5+1110
4Brentford5+69
5Leeds5+49
6Liverpool5+39
7Everton5+39
8Hull City5+28
9Newcastle508
10Chelsea5-27
11Ipswich Town5-46
12Man Utd505
13Nott. Forest5-15
14Sunderland5-44
15Crystal Palace5-54
16Aston Villa5-54
17Bournemouth5-23
18Coventry5-93
19Fulham5-32
20Tottenham5-62
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.