Fotbolti.net
29.11.25 - 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Synir Túfa æfðu með Rauðu Stjörnunni

Novak er vinstra megin og Stefan hægra megin.

Novak er vinstra megin og Stefan hægra megin.

Canon

Mynd: Aðsend

Í vikunni æfðu bræður sem eru skráðir í Val, þeir Novak og Stefan Tufegdzic, með unglingaliðum Rauðu Stjörnunnar. Bræðurnir þykja mikil efni.

Novak er fæddur árið 2012, hann er miðjumaður sem æfði með U14 liðinu.

Stefan er fæddur árið 2010 og er sóknarmaður. Hann æfði með U16 liðinu. Stefan hefur verið í æfingahópum U15 og U16 ára landsliðsins.
Þeir Stefan og Novak eru synir Srdjan Tufegdzic, Túfa, sem var þjálfari Vals í rúmt ár en látinn fara eftir lok tímabilsins 2025.

Túfa er Serbi sem kom til Íslands árið 2006 og var hjá KA, fyrst sem leikmaður og síðar þjálfari, í rúman áratug áður en hann flutti suður. Hann er í dag án starfs en er á blaði hjá félögum í Svíþjóð eftir að hafa stýrt Öster og Skövde 2022-24.

Rauða Stjarnan er stærsta félag Serbíu og fara margir landsliðsmenn Serbíu í gegnum starfið hjá félaginu, ásamt því að það er öflugt að fá inn unga leikmenn frá löndunum í kring. Liðið hefur unnið átta meistaratitla í röð og fimm bikarmeistaratitla.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.