Fotbolti.net
30.01.23 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Burnley krækir í Obafemi (Staðfest)

Michael Obafemi með írska U21 landsliðinu gegn því íslenska.

Michael Obafemi með írska U21 landsliðinu gegn því íslenska.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Írski sóknarmaðurinn Michael Obafemi er kominn til Burnley á lánssamningi frá Swansea City sem gildir út tímabilið með kaupmöguleika.

Obafemi er 22 ára gamall og spilar sem sóknarmaður að upplagi en getur einnig leikið úti á hægri kanti og sem sóknartengiliður. 

Jóhann Berg hefur verið að gera flotta hluti á hægri vængnum hjá Burnley, sem trónir á toppi Championship deildarinnar með 62 stig eftir 28 leiki. Það er þó alltaf meiðslahætta og því mikilvægt fyrir Vincent Kompany að hafa góða breidd í titilbaráttunni.

Obafemi átti gott tímabil í fyrra með 12 mörk og 3 stoðsendingar í 32 deildarleikjum en gengið hefur ekki verið jafn gott í ár. Hann er þessa stundina að glíma við meiðsli en Burnley ákvað samt sem áður að krækja í hann.

Burnley er oft með skemmtileg kynningarmyndbönd fyrir nýja leikmenn sem koma til félagsins.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Birmingham15+1429
2Middlesbrough15+1129
3Stoke City15+629
4Wolves15+828
5West Brom15+828
6Swansea15+426
7Southampton15+1424
8QPR15+624
9West Ham15+1423
10Sheffield Utd15+222
11Portsmouth15+222
12Norwich15+821
13Blackburn15-121
14Cardiff City15018
15Wrexham15-218
16Millwall15-418
17Bristol City15-818
18Bolton15-917
19Charlton Athletic15-1017
20Watford15-1015
21Lincoln City15-1115
22Burnley15-910
23Derby County15-1610
24Preston NE15-178
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.