Rúnar Kristinsson, þjálfari KR í Pepsi-deild karla, var ekki beint í skýjunum yfir 5-0 sigri liðsins á Grindvíkingum í Lengjubikarnum í kvöld en er þó ánægður með hvernig hópurinn er að mótast fyrir Íslandsmótið.
,,Mér fannst við ekki spila neitt sérstaklega vel. Mér fannst við slakir í fyrri hálfleik, Grindvíkingarnir voru meira með boltann og sköpuðu sér ágætis færi. Við skoruðum úr tveimur föstum leikatriðum og það var það sem skildi liðin að í hálfleik en við vorum betri í síðari hálfleik og náðum betri tökum á þessu," sagði Rúnar við Fótbolta.net eftir leikinn.
,,Við löguðum fullt af hlutum og náðum að skora þrjú mörk. Full stór sigur að mínu mati miðað við hvernig leikurinn var. Hugi stóð sig vel í markinu og varnarlínan var sterk og við náðum að loka á þetta."
Gary Martin kom inná sem varamaður í síðari hálfleik og gerði tvö mörk en Rúnari fannst hann leika afar vel. Þá ræddi hann einnig um frammistöðu Gonzalo Balbi á miðjunni og Ivar Furu sem gekk til liðs við KR á dögunum.
,,Ég var ánægður með Gary, hann kom sterkur inn. Hann hefur stundum gott af því að setjast á spýtuna og horfa á leikinn utan frá og horfa á það sem er að gerast inni á vellinum og hann lagði á sig mikla vinnu og spilaði vel fyrir liðið sitt og þess vegna uppskar hann tvö mörk."
,,Ivar átti erfitt uppdráttar í þessum leik, engin spurning. Hann er náttúrlega óvanur þessu gervigrasi og hefur aldrei spilað þar og þetta var dálítið hægt og stamt og var í smá veseni með sendingar en hann er bara búinn að vera hjá okkur í einhverja fimm daga og þekkir strákana ekki nógu vel og okkar leikstíl. Hann lærir það smátt og smátt og verður fín viðbót."
,,Við erum búnir að prófa að nota Lalo á miðsvæðinu og hann er mjög góður þar. Við munum halda áfram að nota hann á miðjunni. Hann er að læra mjög hratt, hann er mjög klókur leikmaður og vinnur gríðarlega vel fyrir liðið."
KR-ingar halda til Spánar í næstu viku í æfingaferð en liðið fer með stóran hóp og er tilhlökkunin mikil.
,,Það er tilhlökkun í öllum leikmannahópnum og öllum sem snúa að liðinu. Við ætlum með stóran hóp út og reyna að gera vel og æfa eins og menn. Vonandi fáum við sól og gott veður og nýtt æfingarnar vel og komið sterkir til baka um miðjan apríl."
,,Síðustu tvær vikurnar fara í að undirbúa liðið fyrir fyrsta leik og það er okkar markmið að vera klárir þegar Íslandsmótið byrjar."
Rúnar segist ekki eiga von á miklum breytingum fyrir mót en liðið á eftir að fá Farid Zato til landsins. Jónas Guðni, Baldur Sigurðsson og Óskar Örn Hauksson eru þá allir að jafna sig af meiðslum.
,,Ég á ekki von á breytingum. Við eigum eftir að fá Farid Zato, hann er ekki kominn til landsins. Það er verið að vinna í hans pappírsmálum, atvinnuleyfið og annað og vonandi verður hann kominn fyrir Spánarferðina. Jónas Guðni er ná sér af meiðslum en hann mun vonandi hreyfa sig eitthvað á Spáni og fá nokkrar mínútur á æfingasvæðinu."
,,Í dag vantaði Óskar og Baldur sem eru báðir meiddir en eins og gerist og gengur í þessu þá þarftu að hafa breiðan og stóran hóp og við þurfum að vera klárir með menn til að taka við keflinu þegar lykilmenn meiðast," sagði hann að lokum.
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.






















