Guðjón Valur Sigurðsson tilkynnti í gær að hann væri hættur í handbolta, fertugur að aldri. Guðjón Valur er einn besti handboltamaður sögunnar og hefur hann lengi vel verið fyrirliði íslenska landsliðsins.
Hann sagði frá tíðindunum á Instagram, en nokkrir landsliðsmenn í fótbolta þökkuðu honum fyrir framlag hans og óskuðu honum til hamingju með ferilinn.
„Þvílikur kóngur. Til hamingju með ferilinn vinur, alvöru ferill," skrifaði landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson.
„Til hamingju með ferilinn!" skrifaði Gylfi Þór Sigurðsson, en landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson skrifaði einnig undir færslu Guðjóns og sömuleiðis Jón Daði Böðvarsson.
Hannes skrifaði: „Til hamingju með þennan glæsilega feril og takk fyrir okkur," og tók Jón Daði í svipaðan streng. „Til hamingju með frábæran feril og takk fyrir okkur."
Guðjón Valur er án efa einn besti íþróttamaður sem Ísland hefur átt, ef ekki sá allra besti.
Athugasemdir