Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   lau 30. júní 2018 19:58
Ívan Guðjón Baldursson
HM: Cavani sendi Evrópumeistarana heim
Mynd: Getty Images
Úrúgvæ 2 - 1 Portúgal
1-0 Edinson Cavani ('7)
1-1 Pepe ('55)
2-1 Edinson Cavani ('62)

Cristiano Ronaldo og liðsfélagar hans í Portúgal eru dottnir úr leik eftir spennandi viðureign gegn Úrúgvæ.

Portúgalir urðu Evrópumeistarar fyrir tveimur árum og er gríðarlega svekkjandi fyrir þjóðina að detta út í 16-liða úrslitum.

Edinson Cavani kom Úrúgvæ yfir snemma leiks eftir glæsilegt samspil við Luis Suarez.

Portúgal tók stjórn á leiknum og sótti mikið. Jöfnunarmarkið sem Pepe skoraði með skalla eftir hornspyrnu í síðari hálfleik var fyllilega verðskuldað.

Cavani var þó aftur á ferðinni skömmu síðar og kom sínum mönnum yfir á nýjan leik. Portúgalir reyndu hvað þeir gátu til að jafna en inn vildi boltinn ekki.

Úrúgvæ mætir því Frakklandi í 8-liða úrslitum Heimsmeistaramótsins. Ronaldo og Lionel Messi hafa verið sendir heim.

Ronaldo hjálpaði Cavani að fara af velli í síðari hálfleik, en sóknarmaðurinn fór haltrandi útaf og gæti misst af næsta leik.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner