Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 30. júlí 2020 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ísland í dag - Stórleikir í 16-liða úrslitum
Bikarmeistarar mætast
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
16-liða úrslit Mjólkurbikarsins hefjast í dag þegar KA tekur á móti ÍBV í hörkuleik á Akureyri. Það eru aðeins lið úr efstu tveimur deildunum eftir í keppninni.

Stöð 2 Sport 3 verður með beina útsendingu frá leiknum. Gífurleg eftirvænting er fyrir slaginn þar sem Eyjamenn eru með gríðarlega sterkt lið í Lengjudeildinni.

Stöð 2 Sport sýnir beint frá viðureign FH og Þórs á svipuðum tíma, er liðin mætast í Hafnarfirði. Þórsarar eru enn að sleikja sárin eftir 6-1 tap gegn Fram í síðustu umferð Lengjudeildarinnar.

Breiðablik tekur á móti Gróttu í Pepsi Max-deildarslag á sama tíma og KR mætir Fjölni.

Fylkir heimsækir þá Fram á meðan HK tekur á móti Aftureldingu.

Víkingur R. og Stjarnan eigast svo við í lokaleik dagsins, í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 3.

Víkingur er ríkjandi bikarmeistari en Stjarnan vann 2018 og þarna mætast því síðustu tveir bikarmeistarar í hörkuslag.

Þar að auki eru leikir á dagskrá í báðum 2. deildunum og 3. deild.

Mjólkurbikar karla
17:30 KA-ÍBV (Stöð 2 Sport 3 - Greifavöllurinn)
18:00 FH-Þór (Stöð 2 Sport - Kaplakrikavöllur)
19:15 Breiðablik-Grótta (Kópavogsvöllur)
19:15 KR-Fjölnir (Meistaravellir)
19:15 Fram-Fylkir (Framvöllur)
19:15 HK-Afturelding (Kórinn)
20:00 Víkingur R.-Stjarnan (Stöð 2 Sport 3 - Víkingsvöllur)

2. deild karla
17:00 Völsungur-Víðir (Vodafonevöllurinn Húsavík)

2. deild kvenna
19:00 Hamrarnir-Fjarðab/Höttur/Leiknir (KA-völlur)

3. deild karla
19:00 Álftanes-Reynir S. (Bessastaðavöllur)
19:00 Sindri-Einherji (Sindravellir)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner