Manchester United er að fylgjast með Gabriel Magalhaes, varnarmanni Lille, en Sky Sports segir frá þessu í dag.
Hinn 22 ára gamli Gabriel er sagður falur fyrir 20 milljónir punda en hann er mjög eftirsóttur.
Everton, Napoli og PSG hafa einnig sýnt Gabriel áhuga.
Hinn 22 ára gamli Gabriel er sagður falur fyrir 20 milljónir punda en hann er mjög eftirsóttur.
Everton, Napoli og PSG hafa einnig sýnt Gabriel áhuga.
Napoli þykir vera líklegasti áfangastaðurinn en félagið er einnig að kaupa Victor Osimhen frá Lille á 45 milljónir punda.
Gabriel var valinn leikmaður tímabilsins hjá Lille á síðasta tímabili en liðið endaði í fjórða sæti í frönsku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir