Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mán 30. september 2019 10:00
Magnús Már Einarsson
Bjössi Hreiðars: Ég loka engum dyrum
Sigurbjörn Hreiðarsson.
Sigurbjörn Hreiðarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurbjörn Hreiðarsson, aðstoðarþjálfari Vals, verður væntanlega ekki áfram hjá félaginu.

Ólafur Jóhannesson verður ekki áfram þjálfari Vals en Sigurbjörn hefur starfað við hlið hans undanfarin fimm ár. Valur varð tvívegis Íslandsmeistari og tvisvar bikarmeistari undir stjórn þeirra.

Sigurbjörn segir alls óvíst hvað tekur við hjá honum.

„Ég loka engum dyrum," sagði Sigurbjörn við Fótbolta.net í dag.

„Ég ligg undir feldi. Ég er að renna út af samning og veit ekkert hvað næsta skref verður."

Kristófer Sigurgeirsson bættist í þjálfarateymi Vals í ár og sömu sögu er að segja af honum og Sigurbirni.

Heimir Guðjónsson, þjálfari HB, er að taka við Val en væntanlega verður tilkynnt formlega um ráðningu hans á næstu dögum.
Athugasemdir
banner
banner