Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 30. september 2019 11:52
Magnús Már Einarsson
Breiðablik mætir PSG í 16-liða úrslitum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik mætir PSG í 16-liða úrslitum Meistaradeildar kvenna en dregið var nú rétt í þessu.

Breiðablik sló Sparta Prag út í 32-liða úrslitunum í síðustu viku og tryggði sér þar með réttinn til að spila í 16-liða úrslitum.

PSG er með mjög öflugt lið en það endaði í 2. sæti í frönsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili, fimm stigum á eftir Evrópumeisturum Lyon.

Sara Björk Gunnarsdóttir og félagar í Wolfsburg mæta Twente frá Hollandi.

Fyrri leikirnir eru á dagskrá 16 og 17. október og þeir síðari tveimur vikum síðar eða 30 og 31. október. Fyrri leikurinn fer fram í París og sá síðari á Kópavogsvelli.

16-liða úrslit
PSG - Breiðablik
Glasgow City - Bröndby
Lyon - Fortuna Hjörring
Wolfsburg - Twente
Slavia Prag - Arsenal
Manchester City - Atletico Madrid
Barcelona - Minsk
Blik Kazygurt - Bayern Munchen


Athugasemdir
banner
banner
banner