Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 30. september 2019 15:07
Elvar Geir Magnússon
Cardiff þarf að borga 5,3 milljónir punda fyrir Sala
Emiliano Sala.
Emiliano Sala.
Mynd: Getty Images
FIFA hefur úrskurðað að Cardiff City verði að greiða franska félaginu Nantes 5,3 milljónir punda fyrir kaup á Emiliano Sala.

Argentínski sóknarmaðurinn lést í flugslysi í janúar, skömmu eftir að Cardiff hafði tilkynnt um kaup á honum.

Cardiff hafði samið við Nantes um 15 milljóna punda kaupverð og þarf að greiða fyrstu greiðslu sem samið var um.

Cardiff neitaði í fyrstu að greiða Nantes og bar fyrir sér þau rök að hann hafi ekki verið formlega skráður leikmaður félagsins af ensku úrvalsdeildinni þegar flugslysið átti sér stað.

Dómstóll FIFA tilkynnti um niðurstöðuna í dag en Cardiff getur áfrýjað til íþróttadómstólsins í Lausanne.
Athugasemdir
banner
banner