Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 30. september 2019 15:30
Magnús Már Einarsson
Fabianski frá í að minnsta kosti tvo mánuði
Mynd: Getty Images
Lukasz Fabianski, markvörður West Ham, verður frá keppni næstu tvo mánuðina að minnsta kosti vegna meiðsla á mjöðm.

Fabianski fór meiddur af velli í leik West Ham og Bournemouth um helgina.

Hinn 34 ára gamli Fabianski hefur byrjað tímabilið vel og haldið þrisvar sinnum hreinu hingað til.

Varamarkvörðurinn Roberto mun nú standa vaktina í næstu leikjum West Ham og David Martin verður honum til halds og trausts.
Athugasemdir
banner
banner
banner