Zlatan Ibrahimovic er meðal bestu leikmanna bandarísku MLS deildarinnar þrátt fyrir háan aldur. Hann verður 38 ára í vikunni og er kominn með 29 mörk í 28 deildarleikjum á tímabilinu.
Hann hefur verið orðaður við brottför frá Bandaríkjunum og hefur argentínska stórveldið Boca Juniors áhuga á að fá hann til sín. Daniele De Rossi, Carlos Tevez og Mauro Zarate eru meðal leikmanna Boca.
„Það er satt að Ibrahimovic hefur áhuga á að spila fyrir Boca og það er satt að við erum í stöðu til að fá hann til okkar," segir Jorge Anró, forseti Boca.
„Félagið er í mjög góðri stöðu fjárhagslega og gæti borgað Zlatan viðeigandi laun."
Athugasemdir