Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 30. september 2019 13:30
Magnús Már Einarsson
Mandzukic má fara í janúar - Endar hann hjá Man Utd?
Mynd: Getty Images
Juventus er tilbúið að selja króatíska framherjann Mario Mandzukic í janúar samkvæmt frétt Sky á Ítalíu.

Manchester United gæti reynt að fá Mandzukic í sínar raðir í janúar en hann hefur verið orðaður við félagið að undanförnu.

Í sumar hafði United áhuga á að fá Mandzukic sem og PSG og félag í Katar. Leikmaðurinn vildi hins vegar ekki færa sig um set þá.

Maurizio Sarri, þjálfari Juventus, er ekki með Mandzukic í áætlunum sínum en leikmaðurinn hefur ekkert komið við sögu á þessu tímabili.

Mandzukic er 33 ára gamall en hann kom til Juventus frá Atletico Madrid árið 2015.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner