Portúgalski miðjumaðurinn Telmo Ferrera Castanheira hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við ÍBV.
Telmo var að ljúka sínu fyrsta tímabili með ÍBV en hann var valinn besti leikmaður tímabilsins hjá liðinu.
Hinn 27 ára gamli Telmo skoraði tvö mörk í 21 leik þegar ÍBV féll úr Pepsi Max-deildinni í sumar.
„Telmo er nú farinn í frí til Portúgals en snýr aftur til Eyja í febrúar og verður burðarás í liðinu næstu ár," segir á heimasíðu ÍBV.
„Það verður eitthvað að fylgjast með vinstri fæti Telmo í Inkasso á næsta ári. Til hamingju með samninginn Telmo!"
Athugasemdir