Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 30. september 2022 18:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Álitsgjafar rýna í úrslitaleikinn - Mun FH koma fólki á óvart?
Úr leik Víkinga og FH fyrr í sumar.
Úr leik Víkinga og FH fyrr í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Albert Brynjar Ingason.
Albert Brynjar Ingason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Sveinn Geirsson.
Arnar Sveinn Geirsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jasmín Erla Ingadóttir.
Jasmín Erla Ingadóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhann Már Helgason hér til vinsri.
Jóhann Már Helgason hér til vinsri.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sverrir Mar Smárason.
Sverrir Mar Smárason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sævar Atli Magnússon.
Sævar Atli Magnússon.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á morgun fer fram einn stærsti leikur ársins er FH og Víkingur eigast við í úrslitaleiks Mjólkurbikars karla á Laugardalsvelli. Flautað verður til leiks klukkan 16:00 á Laugardalsvelli.

Við fengum nokkra álitsgjafa til að spá í leikinn sem er framundan. Lagðar voru þrjár spurningar fyrir þau.

Hvort liðið er sigurstranglegra?

Hvernig mun þessi leikur spilast?

Hvernig fer hann?

Hér fyrir neðan má sjá svör álitsgjafana.

Albert Brynjar Ingason, sóknarmaður og sérfræðingur
Víkingar verða að teljast sigurstranglegri, unnið báða leiki sína gegn FH í sumar - sem og í fyrra. Hafa ekki tapað leik í deildinni síðan 16. maí, 18 leikir í röð án taps í deild og bikar núna og í þeim leikjum sem þeir hafa kannski ekki fundið taktinn þá finna þeir samt alltaf leið til þess að sækja úrslit á meðan FH-ingar, eins og allir vita, hafa verið í basli í sumar. Það kom þó stígandi eftir samstöðufundinn mikla þar sem liðið tapaði ekki í fimm leikjum í röð áður en það kom að tapleiknum gegn Stjörnunni. FH er með gæða leikmenn í sínum hóp og þegar þeir eru vel gíraðir þá er þetta öflugt lið. Það er ekki að ástæðulausu að þeim var spáð í efri hlutanum fyrir mót og það er klárt mál að þeir mæta vel gíraðir í þetta verkefni og því verður þetta jafn leikur.

Víkingar munu pressa hátt, hugsanlega reyna að fá FH til að spila út frá marki en koma svo með pressuna um leið, þeir muna spila út frá marki og fara hátt með bakverðina sína sérstaklega vinstra megin og reyna að 'overloada' þar á meðan FH-ingar munu liggja til baka, beita skyndisóknum og reyna fara hratt í þessi svæði fyrir aftan bakverði Víkinga. Það verða engir sénsar teknir hjá FH á meðan þeir eru með núllið, sparkað yfir pressuna og agaður varnarleikur og skyndisóknir -ekkert ósvipað og þeir gerðu í 0-0 jafnteflinu gegn KR í Vesturbænum og gerðu vel.

Víkingur Reykjavík vinnur þennan leik 2-1, FH-ingar komast yfir og verða yfir eftir fyrri hálfleikinn en þetta 'know-how' sigur viðhorf er komið í Víkina verður til þess að þeir snúa þessu við. Arnar breytir einhverju í hálfleik og Víkingar Jafna á fyrsta korteri síðari hálfleiks og skora svo sigurmarkið á síðasta korteri leiksins.

Jakkaföt vs jogging galli, og jakkaföt vinna alltaf.

Arnar Sveinn Geirsson, formaður Leikmannasamtaka Íslands
Ég held að það sé alveg ljóst að núverandi Íslands- og bikarmeistarar eru talsvert sigurstranglegri – en það er líka það sem gerir þennan leik enn erfiðari fyrir þá. Það búast allir við sigri Víkings í þessum leik og það er í rauninni krafan að Víkingur klári þetta. FH-ingar koma pressulausir inn í þennan leik með risastórt tækifæri til að bjarga, að einhverju leyti, versta tímabili FH í lengri tíma.

FH hefur nákvæmlega engu að tapa. Hörmulegt sumar – en þeir eru þó komnir í bikarúrslit og tækifæri til að geta fagnað einhverju. Ég held að FH muni koma með þvílíka orku og kraft inn í þetta og koma Víkingunum á óvart og ég hugsa að við sjáum FH komast yfir snemma í leiknum. Eftir það nær leikurinn betra jafnvægi sem mun hjálpa Víkingi, en þeir munu ekki ná að jafna leikinn fyrr en seint í síðari hálfleik og koma leiknum í framlengingu. Í framlengingunni verða skoruð þrjú mörk – 1 frá Víkingi og 2 frá FH og munu FH þar af leiðandi verða bikarmeistarar 2022.

Síðast þegar ég spáði FH góðu gengi að þá fór það alveg þveröfugt ofan í þá. Það gæti því verið að ég sé nú þegar búinn að útrýma allri von sem þeir höfðu á því að geta orðið bikarmeistarar. En ég læt reyna aftur á þetta – og spái því að FH verði bikarmeistarar eftir framlengdan leik og að liðið fari þar af leiðandi með smá sjálfstraust inn í massífa fallbaráttu sem er framundan.

Jasmín Erla Ingadóttir, markahæsti leikmaður Bestu deildarinnar
Víkingar eru sigurstranglegri, þeir þekkja það að spila stóra leiki og gera það vel. Víkingar verða meira með boltann og með yfirhöndina meira minna allan leikinn. FH mun reyna beita skyndisóknum og nýta föst leikatriði. Ég held að Logi muni koma Víking á bragðið og þá er ekki aftur snúið. Leikurinn fer 3-1 fyrir Víkingi.

Jóhann Már Helgason, Chelsea maður og sérfræðingur Dr Football
Víkingur eru auðvitað mikið sigurstranglegri. Þeir tapa afar fáum fótboltaleikjum og eru mjög þrautseigir að ná í úrslit, sérstaklega þegar mikið er undir. Þessi hópur hjá Víkingum kann líka að vinna þennan bikar og þekkja því þessa úrslitaleiki og spennustigið sem fylgir þessum leikjum.

Víkingar munu stýra þessum leik þar sem Pablo og Júlli Magg munu vera í lykilhlutverki. Það væri óðs manns æði hjá Eiði Smára að láta FH stíga hátt upp á móti Vikes. Mér finnst FH vera hvað bestir þegar þeir láta þessa ungu og kraftmiklu stráka eins og Úlf Ágúst, Vuk Óskar og Oliver Hreiðars byrja frammi og beita skyndisóknum þar sem þeir nýta hraðann á Oliver.

En þetta snýst aðallega um hvort FH vörnin nái að halda Víkingum í skefjum og lenda ekki undir snemma. Arnar Gunnlaugs veit að FH eru með brothætt lið eftir lélegt gengi í sumar þannig Vikes munu keyra upp tempóið fyrstu tuttugur mínútur leiksin til að reyna ná inn marki.

Spái 3-1 sigri Víkinga. Viktor Örlygur, Helgi Guðjóns og Ari Sigurpáls með mörkin fyrir Vikes og Matti Villa fyrir FH.

Sverrir Mar Smárason, Ástríðan
Það eru klárlega Víkingar sem eru sigurstranlegri. Þeir eru að spila þriðja úrslitaleikinn í röð og unnu fyrri tvo. Arnar Gunnlaugs er einhver snillingur í að stilla hausa leikmanna og leggja upp svona leiki. Svo eru Víkingar bara í mun betra flæði en FH.

Ég spái svipuðum leik og þegar Víkingar unni ÍA í fyrra. Yfirburðir í upphafi og eftir að hafa skorað þá munu FH eiga brekku eftir. Spil Víkinga mun ganga betur en hjá FH upp völlinn og þeir skapa sér fleiri færi. FH mun reyna að sækja hratt á bak við en Víkingar vita það og munu vera með leiðir til að stoppa það.

Ég ætla að spá 2-0 fyrir Víking. Bæði mörkin í fyrri hálfleik. Viktor Örlygur og Luigi með mörkin.

Sævar Atli Magnússon, leikmaður Lyngby og U21 landsliðsins
Ég tel Víkingana vera sigurstranglegri eins og flestir sennilega, þá bara miðað við spilamennsku upp á síðkastið og stöðu í deild. Árangur Víkinga líka í stórum leikjum seinustu ár er sturlaður og þeir koma minna stressaðir í þennan leik, það er klárt. FH er með skrýtna blöndu af ungum og eldri leikmönnum og verður gaman að sjá spennustigið á þeim í byrjun leiks.

Ég held að það muni sjást strax á kantstöðunum hjá byrjunarliði FH hvernig þeir ætla spila þennan leik. Ef Oliver og Vuk munu byrja á köntunum þá munu þeir liggja til baka og treysta á skyndisóknir með hraða þeirra. Síðan eru Davíð Snær, Baldur Logi, Máni og Lennon líka möguleiki en það eru leikmenn allir með svipaða eiginleika og finnst skemmtilegra að hafa boltann en að elta hann. Víkingarnir munu samt alltaf stýra þessum leik án bolta með pressu sinni og með bolta með Pablo og Júlla að stýra tempóinu.

Ég spái 3-1 sigri Víkinga, þeir komast í 2-0 en Máni og Vuk búa til eitt mark fyrir FH-inga upp úr engu og síðan skorar Helgi Guðjóns undir lokin eftir að hafa komið inn á, að sjálfsögðu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner