Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fös 30. september 2022 08:17
Elvar Geir Magnússon
Ívar Orri dæmir bikarúrslitaleikinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á morgun klukkan 16 mætast FH og Víkingur í sjálfum bikarúrslitaleiknum á Laugardalsvelli.

Ívar Orri Kristjánsson mun dæma þennan risaleik en Ívar hefur ekki áður dæmt bikarúrslitaleik í karlaflokki.

Ívar hefur síðustu ár verið í hópi bestu dómara landsins og í sumar hefur hann dæmt fjölmarga leiki á erlendri grundu og fengið góða dóma, meðal annars hefur hann dæmt í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar.

Birkir Sigurðarson og Egill Guðvarður Guðlaugsson verða aðstoðardómarar bikarúrslitaleiksins og Vilhjálmur Alvar Þórarinsson fjórði dómari.

Eftirlitsmaður KSÍ verður Frosti Viðar Gunnarsson.
Athugasemdir
banner