Fotbolti.net
30.09.24 - 11:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Juventus enn ekki fengið á sig mark

Motta og Conte gerðu markalaust jafntefli fyrir rúmri viku síðan.

Motta og Conte gerðu markalaust jafntefli fyrir rúmri viku síðan.

Canon

Mynd: EPA

Juventus er í öðru sæti ítölsku deildarinnar, staðreynd sem er kannski sögulega neitt svakalega merkileg. Juventus er stórveldi á Ítalíu sem er vant því að vera við toppinn.

Það sem er öllu merkilegra er sú staðreynda að liðið hefur enn ekki fengið á sig mark í deildinni en sjötta umferðin var leikin um helgina.

Juve hefur unnið þrjá af sex fyrstu leikjum sínum og gert þrjú markalaus jafntefli. Allir sigrarnir hafa verið eins, eða þrjú mörk skoruð og ekker mark á sig.
Liðið er fyrsta ítalska liðið síðan AC Milan '93/94 til þess að halda hreinu í fyrstu sex umferðum deildarinnar.

Þetta er eftirtektarverður árangur hjá Thiago Motta og hans lærisveinum. Kannski sérstaklega ef horft er í þá staðreynd að liðið tapaði fyrsta æfingaleiknu undir stjórn Motta 3-0 á móti Nürnberg sem spilar í þýsku B-deildinni. Juve hefur fengið á sig eitt mark á tímabilinu, það var gegn PSV í 3-1 sigri í 1. umferð Meistaradeildarinnar.

Í hinum toppdeildum Evrópu hafa lið minnst fengið tvö mörk á sig í byrjun móts.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Inter6+1016
2Lazio6+716
3Roma6+1114
4Cagliari6+313
5Milan6+612
6Juventus6+411
7Como6+311
8Napoli6+410
9Frosinone6+210
10Atalanta609
11Sassuolo608
12Torino6-27
13Lecce6-66
14Bologna6-25
15Udinese6-44
16Monza6-64
17Genoa6-64
18Parma6-64
19Fiorentina6-74
20Venezia6-110
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.