Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 30. nóvember 2019 16:44
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Southampton og Watford: Sarr fær tækifæri
Mynd: Getty Images
Southampton tekur á móti Watford í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Liðin mætast í botnslag þar sem Watford er í neðsta sæti með 8 stig og Southampton er með 9 stig.

Ralph Hasenhüttl gerir eina breytingu á liðinu sem gerði jafntefli við Arsenal. Stuart Armstrong er meiddur og utan hóps en Moussa Djenepo tekur hans stöðu í liðinu.

Quique Flores gerir tvær breytingar á liðinu sem tapaði 0-3 gegn Burnley. Adam Masina kemur inn fyrir hinn meidda Craig Dawson og þá kemur Ismaila Sarr inn fyrir Andre Gray.

Southampton: McCarthy, Cedric, Stephens, Bednarek, Bertrand, Hojbjerg, Ward-Prowse, Djenepo, Redmond, Ings, Obafemi
Varamenn: Gunn, Yoshida, Valery, Romeu, Boufal, Long, Adams

Watford: Foster, Femenia, Mariappa, Cathcart, Masina, Holebas, Doucoure, Capoue, Hughes, Deulofeu, Sarr
Varamenn: Gomes, Chalobah, Quina, Foulquier, Pereyra, Gray, Deeney
Athugasemdir
banner
banner