Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   lau 30. nóvember 2019 17:14
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Grikkland: Endurkomusigur hjá Ögmundi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ögmundur Kristinsson var í markinu hjá Larissa sem mætti Volos NFC í grísku úrvalsdeildinni.

Larissa, sem var á heimavelli í leiknum, var 1-0 undir í hálfleik þar sem Joaquin Torres skoraði fyrir Volos á 38. mínútu.

Fatjon Andoni jafnaði fyrir Larissa á 57. mínútu er hann skoraði af vítapunktinum. Leikurinn virtist lengi vel stefna í jafntefli, en á 84. mínútu skoraði Abiola Dauda sigurmark Larissa.

Niðurstaðan 2-1 sigur Ögmundar og félaga. Með þessum sigri fer Larissa upp úr áttunda sæti í það fjórða.
Athugasemdir
banner
banner
banner