Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   lau 30. nóvember 2019 16:34
Ívan Guðjón Baldursson
Mourinho bauð boltastráknum í mat fyrir leik
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho var mjög ánægður með starf boltastráks í 4-2 sigri gegn Olympiakos í Meistaradeildinni í vikunni.

Olympiakos komst óvænt í 0-2 og jafnaði Harry Kane á 50. mínútu eftir skjót viðbrögð frá boltastrák á hliðarlínunni.

Mourinho þakkaði stráknum fyrir og bauð honum í mat með liðinu fyrir leikinn gegn Bournemouth í dag á heimavelli.

„Ég var að tala við Jose Mourinho í göngunum. Hann segir að 15 ára gamli boltastrákurinn Callum Hynes snæddi með liðinu fyrir leikinn. Hann ætlar að bjóða nýjum boltastrák/stelpu slíkt hið sama fyrir hvern heimaleik," sagði Conor McNamara, fréttamaður BBC.

Tottenham er 3-1 yfir þessa stundina, þegar 77 mínútur eru liðnar af venjulegum leiktíma.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner