Fotbolti.net
30.11.20 - 21:56
Victor Pálsson

England: Watkins skúrkurinn í tapi gegn West Ham

Jarod Bowen komst á blað.

Jarod Bowen komst á blað.

Canon

Mynd: Getty

<b>West Ham 2 - 1 Aston Villa</b>
1-0 Angelo Ogbonna('2)
1-1 Jack Grealish('25)
2-1 Jaron Bowen('46)
Aston Villa tapaði í kvöld sínum öðrum deildarleik í röð er liðið spilaði við West Ham á London Stadium.

Villa vann Arsenal mjög óvænt 0-3 á útivelli í sjöunda leik sínum en tapaði 1-0 heima gegn Brighton í síðustu umferð.

West Ham er hins vegar á mikilli siglingu og vann sinn þriðja leik í röð og er nú í fjórða sæti deildarinnar, fjórum stigum frá toppnum.

Angelo Ogbonna kom West Ham á lagið í kvöld með skallamarki eftir aðeins tvær mínútur í fyrri hálfleik.

Jack Grealish er einn heitasti leikmaður Villa og jafnaði hann metin á 25. mínútu með skoti sem átti viðkomu í varnarmanni og í netið.

Eftir eina mínútu í seinni hálfleik var West Ham komið aftur yfir er Jarod Bowen afgreiddi fyrirgjöf Said Benrahama með öxlinni og staðan orðin 2-1.

Á 74. mínútu fengu gestirnir hins vegar vítaspyrnu eftir að Declan Rice hafði gerst brotlegur innan teigs. Ollie Watkins steig á punktinn en skot hans fór í þverslá og yfir markið.

Watkins virtist svo hafa jafnað leikinn á 91. mínútu í uppbótartíma en mark hans var tekið af vegna rangstöðu og lokastaðan, 2-1.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.