Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 30. nóvember 2021 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Segir að Bergwijn sé ekki í myndinni hjá Conte
Steven Bergwijn
Steven Bergwijn
Mynd: Getty Images
Hollenski vængmaðurinn Steven Bergwijn er ekki í myndinni hjá Tottenham Hotspur undir stjórn Antonio Conte en það er hollenski blaðamaðurinn Mike Verwiej sem segir frá þessu.

Conte tók við Tottenham 3. nóvember og stýrði liðinu sólarhring síðar gegn Vitesse en þá var Bergwijn á bekknum.

Hann var á bekknum gegn Everton og Leeds í deildinni en kom ekki við sögu. Þá var hann einnig á bekknum gegn Burnley um helgina en sá leikur fór aldrei fram vegna veðuraðstæðna.

Conte hefur aðeins tvisvar sinnum talað við Bergwijn á þessum mánuði sem hann hefur verið við stjórn og er ekki í plönum ítalska stjórans samkvæmt Verwiej.

Bergwijn gæti því mögulega verið á leið frá félaginu í janúar en Ajax hefur mikinn áhuga á að fá hann.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner