Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 30. desember 2020 21:32
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heimild: Visir.is 
Patrik á leið til Silkeborg? - Yrði liðsfélagi Stefáns Teits
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Patrik Sigurður Gunnarsson gæti verið á leið til Silkeborg að láni frá Brentford. Markvörðurinn lék á dögunum sinn síðasta leik með Viborg og sagði í kjölfarið að stefnan væri að fara annað að láni nú í janúar. Patrik var að láni hjá Viborg fyrri hluta leiktíðarinnar frá Brentford.

Lasse Vøge, blaðamaður BT í Danmörku, greinir frá þessu en aðalmarkvörður Silkeborg meiddist illa á dögunum.

Silkeborg er sjö stigum á eftir toppliðum Viborg og Esbjerg í næstefstu deild í Danmörku.

Ef Patrik fer til Silkeborg verður hann liðsfélagi Stefáns Teits Þórðarsonar, liðsfélaga síns í U21 árs landsliðinu.

Sjá einnig:
Patrik: Verð að vera klár þegar David verður seldur (20. nóv)
Athugasemdir
banner
banner
banner