Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
banner
   mán 31. janúar 2022 23:01
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Dan Burn kominn heim í Newcastle (Staðfest)
Mynd: EPA
Dan Burn er kominn heim til Newcastle en hann er keyptur frá Brighton.

Burn er uppalinn hjá Newcastle en fór snemma þaðan. Hann skrifar undir tveggja og hálfs árs samning. Hann er fimmti leikmaðurinn sem Newcastle fær í janúar.

Burn hefur verið lykilmaður í skemmtilegu liði Brighton í ensku úrvalsdeildinni síðustu þrjú ár.

„Ég er í skýjunum með að vera hér. Mér datt aldrei í hug að ég yrði leikmaður Newcastle og vera í kringum St. James' Park, mig hefur dreymt um þetta síðan ég var krakki."

„Ég get ekki beðið eftir því að fara út á völl í treyjunni og sjá hvernig það er. Eftir að hafa setið í stúkunni sem krakki og vera kominn hingað, það er klikkað. Ég er spenntur að byrja," sagði Burn.


Athugasemdir
banner
banner